25.5.2012 | 12:51
Ég er á leiðinni, alltaf á leiðinni.... :)
13.5.2012 | 21:19
Aðvörun - afmæli - gifting - veisla - aftur.
Ágætu jörfaliðar!
Löngu giftu hjónin í Kvíaholti á Mýrum ætla að halda upp á afmæli húsfreyjunnar með pomp og prakt þann 18. ágúst næstkomandi. Af því tilefni er Jörfaliðum boðið að mæta, eta, drekka og vera glaðir fram eftir kveldi daginn þann. Í æðiskasti játaði svo undirritaður að giftast kerlu sinni aftur, nú að heiðnum sið, og fer sú athöfn fram fyrr um daginn framan við hús í norðankulda og trekki. Að sjálfsögðu er Jörfaliðum í sjálfvald sett hvort þeir mæti í þá athöfnina og eyði með okkur deginum öllum eða komi til áts og drykkjar þegar líður að kveldi.
Bis dann,
A og H
9.5.2012 | 14:15
Vill einhver elska fjörutíuogníu ára gamlan mann???
Sælinú allir Jörfaliðar, nær og fjær.
Nú styttist í Stór-Afmæli hjá Stór-Óla (miðvikudaginn 16. maí) og Jörfaliðar eru boðnir í partí.
Þar sem hefð hefur skapast fyrir því hjá Akraselum að senda út stórafmælispartíboð á bloggið í bundnu máli þá fylgir hér boðsljóð fyrir þetta tilefni.
Lesist/syngjist undir lagi Þursaflokksins:
http://www.youtube.com/watch?v=-PMhO_koV_4
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann
vill einhver elska 49 ára gamlan mann
- sem verður fimmtugur (þann 16. maí).
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann
vill einhver elska 49 ára gamlan mann
sem er reglusamur og voða mjúkur.
- Hann er reglusamur og drekkur súpu.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann
vill einhver elska 49 ára gamlan mann.
- Hann á læðu og tík.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann
vill einhver elska 49 ára gamlan mann
sem er misskilinn og safnar bróderuðum dúkum.
- Hann er misskilinn og safnar trompetum og túbum.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann
vill einhver elska 49 ára gamlan mann.
- Svar óskast sent - merkt "fimmtugur"
- Svar óskast sent - merkt "fimmtugur"
Oriroriojororo...
... Óli býður í partý heima...
... á miðvikudaginn ekki gleyma...
... og tjaldið opnar klukkan átta...
... gleðskapur þar til mál er að hátta...
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann
vill einhver elska 49 ára gamlan mann.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann
vill einhver elska 49 ára gamlan mann.
... og Óli býður í partý heima...
... á miðvikudaginn ekki gleyma...
... og tjaldið opnar klukkan átta...
... gleðskapur þar til mál er að hátta...
...... Vill - einhver - elska???
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.5.2012 | 10:14
Vorferð í Jörfa.
Kær kveðja frá Guju.21.4.2012 | 18:21
"Nýjar" myndir í albúmi frá Gunnu
15.4.2012 | 22:29
Fyrst...og síðast:)
Sælt veri fólkið.
Best að bregða sér hér inn til þess að þakka Ými Ólafssyni og fjölskyldu betur fyrir sig. Góður og skemmtilegur dagur með þeim og hluta af ,,Jörfaliðinu" í tilefni af fermingu Ýmis í dag.
Ég greip með mér elsta barnabarnið. Hún velti fólkinu talsvert fyrir sér, finnst skemmtilegra að vita hver heitir hvað og hverjir eru mömmur, pabbar, afar, ömmur, systur, bræður...æ, þið vitið
Að lokum var hún búin að fá nóg og spurði hvenær við færum heim. Þá fékk hún að vita það að þetta fólk sem hún hefði hitt færi oftast síðast heim, jafnvel þó að það hafi mætt fyrst
Þetta væri nefnilega ,,Jörfaliðið". Þá vildi hún fá að vita hvað hin liðin hétu. Óli gat leyst úr því að einhverju leiti.
En þetta varð til þess - þó að maður kæmi snemma og færi seint, að nú telur maður niður til sjöunda september!
Lifið heil, Fjóla Ásg - enn pakksödd
20.3.2012 | 18:22
Góð mæting
6.3.2012 | 12:56
Meira af hátíðarhöldum.
Ágætu Jörfaliðar. Jörfungar?
Frændi okkar ágætur býður upp á Jörfaliðspakka á hótel Álfheimum, 4000 kr nóttin í uppábúnu rúmi. Það er ári vel boðið svo ekki sé meira sagt. Þess utan ætlar hann að leigja okkur matsalinn á laugardagskveldinu til að halda þar kvöldvöku ef okkur sýnist svo, sem ég held að okkur sýnist. Það sýnist mér. Hver bókar fyrir sig hjá Vidda, tóm hamingja.
Fyrir hönd nefndar, Hjörleifur Helgi Stefánsson, nefndarmaður.
22.2.2012 | 10:34
100 ár í haust!
Allgóðu jörfaliðar.
Nú í haust stendur til, eins og liðsmenn vonandi vita, að halda með pomp og prakt upp á 100 árin sem liðin eru frá fæðingu Óla í Jörfa, þess merkis og heiðursmanns. Nefndin (lunginn af henni, Helga, viltu snáfa á feisbúkk) hefur tekið þá gerræðislegu ákvörðun að halda upp á herlegheitin á Borgarfirði helgina 7. - 9. september næstkomandi, enda hvergi hægt, finnst okkur, að minnast afa heitins jafn vel og á sjálfum höfuðstaðnum okkar. Nefndin er samansett af óvenju skemmtilegu fólki og því er nokkuð sennilegt að skemmtilegt verði þessa helgina á Borgarfirði, einnig vegna þess hve skemmtilegt fólk er væntanlegt til hátíðahaldanna. Takið því helgina þessa frá ágætu jörfaliðsmenn og fjölmennum nú austur til að minnast og fagna lífshlaupi gömlu hjónanna sem gerðu okkur öllum kleift að vera jafn ágæt og við erum.
Nánar auglýst síðar,
Nefndin.
7.2.2012 | 21:41
Austurátt.
Gott fólk !
Við hjúin hér á bæ erum að hugsa um að skreppa í "Gamlann" nokkra daga. Sennilega verður þar hlýtt hús um helgina
K.v. Gunna.


















